Kaffihúsamessa í Grafarvogskirkju kl. 11 sunnudaginn 8. júlí. Kaffihúsamessan verður að þessu sinni með djassívafi, en tónlistarmenn munu koma og flytja nokkur vel valin lög. Séra Grétar Halldór Gunnarsson þjónar. Organisti er Hákon Leifsson og meðlimir úr kór Grafarvogskirkju leiða söng. Sigurjón Árni Eyjólfsson spilar á saxófón og Sigurður J. Grétarsson leikur á gítar.