Hátíðarguðsþjónusta á páskadag kl. 08:00. Séra Sigurður Grétar Helgason prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju syngur. Einsöngvari er Viðar Gunnarsson. Organisti er Hákon Leifsson. Heitt súkkulaði og hátíðarmorgunverður í boði eftir messuna.

Hátíðarguðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Eir kl. 10:30. Séra Sigurður Grétar Helgason þjónar. Kór Grafarvogskirkju syngur. Einsöngvari er Viðar Gunnarsson. Organisti er Hákon Leifsson.

Upprisuhátíð í Kirkjuselinu kl. 13:00. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Vox Populi syngur. Einsöngvari er Björg Þórhallsdóttir. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson. Boðið er upp á Fiskisúpu Sægreifans eftir messu.