Skírdagur

Ferming kl. 10:30. Prestar eru Arna Ýrr Sigurðardóttir og Sigurður Grétar Helgason. Ferming kl. 13:30. Prestar eru Grétar Halldór Gunnarsson og Sigurður Grétar Helgason. Kór Grafarvogskirkju syngur og organisti er Hákon Leifsson.

Skírdagskvöld – Boðið til máltíðar

Við minnumst síðustu kvöldmáltíðar Jesú Krists með lærisveinum sínum með því að neyta einfaldrar máltíðar við langborð í kirkjunni. Máltíðin er hluti af messunni. Séra Grétar Halldór Gunnarsson þjónar. Stundin er kl. 20:00 í Grafarvogskirkju.