Páskabingó
Hið árlega páskaeggjabingó Safnaðarfélagsins verður haldið mánudaginn 26. mars og hefst kl. 19:30. Vinningar eru sem fyrr girnileg páskaegg. Verð á bingóspjöldum kr. 400,- og 3 spjöld á kr. 1000,-. Munið eftir reiðufé! Mætum í páskaskapi og tökum alla fjölskylduna með!

Skírdagur 29. mars
Ferming kl. 10:30. Prestar eru Arna Ýrr Sigurðardóttir og Sigurður Grétar Helgason. Ferming kl. 13:30. Prestar eru Grétar Halldór Gunnarsson og Sigurður Grétar Helgason. Kór Grafarvogskirkju syngur og organisti er Hákon Leifsson.

Skírdagskvöld – Boðið til máltíðar
Við minnumst síðustu kvöldmáltíðar Jesú Krists með lærisveinum sínum með því að neyta einfaldrar máltíðar við langborð í kirkjunni. Máltíðin er hluti af messunni. Séra Grétar Halldór Gunnarsson þjónar. Stundin er kl. 20:00 í Grafarvogskirkju.

Föstudagurinn langi 30. mars
Guðsþjónusta; Sjö orð Krists á krossinum kl. 11:00. Séra Guðrún Karls Helgudóttir þjónar. Kammerkór Grafarvogskirkju syngur. Organisti er Hákon Leifsson.
Passíusálmar Hallgríms Péturssonar verða fluttir í heild sinni kl. 13:00 – 18:00. Leikarar annast lesturinn. Tónlistarflutningur á milli lestra. Hákon Leifsson leikur á píanó og Guðrún Karls Helgudóttir sóknarprestur flytur ávarp í upphafi.

Páskadagur 1. apríl
Hátíðarguðsþjónusta á páskadag kl. 08:00. Séra Sigurður Grétar Helgason prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju syngur. Einsöngvari er Viðar Gunnarsson. Organisti er Hákon Leifsson. Heitt súkkulaði og hátíðarmorgunverður í boði eftir messuna.
Hátíðarguðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Eir kl. 10:30. Séra Sigurður Grétar Helgason þjónar. Kór Grafarvogskirkju syngur. Einsöngvari er Viðar Gunnarsson. Organisti er Hákon Leifsson.
Upprisuhátíð í Kirkjuselinu kl. 13:00. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Vox Populi syngur. Einsöngvari er Björg Þórhallsdóttir. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson. Boðið er upp á Fiskisúpu Sægreifans eftir messu.

Annar í páskum 2. apríl
Ferming kl. 10:30. Prestar eru Grétar Halldór Gunnarsson og Guðrún Karls Helgudóttir. Ferming kl. 13:30. Prestar eru Guðrún Karls Helgudóttir og Sigurður Grétar Helgason. Kór Grafarvogskirkju syngur og organisti er Hákon Leifsson.

 

Vekomin í kirkjuna þína!