Aðalfundur Safnaðarfélags Grafarvogskirkju verður haldinn í Grafarvogskirkju mánudaginn 5. febrúar og hefst kl. 20:00. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf og önnur mál. Þá mun sr. Grétar Halldór Gunnarsson fjalla stuttlega um innri umbreytingu Marteins Lúthers. Sú innri umbreyting átti eftir að umbylta lífi hans sjálfs,- og sögu Vesturlanda. Kosið verður í stjórn félagsins en nokkrir vaskir og drífandi einstaklingar hafa þegar boðið sig fram til stjórnarsetu en það er alltaf pláss fyrir fleiri! Við bjóðum nýja og gamla félaga hjartanlega velkomna, bæði þá sem luma á góðum hugmyndum sem þá langar að sjá verða að veruleika í starfi Safnaðarfélagsins en líka hina sem vilja ,,bara“ vera með. Við erum afskaplega spennt fyrir áframhaldandi starfi með nýjum og aðeins eldri félögum. Verið hjartanlega velkomin; við hlökkum mikið til að sjá ykkur!