Jólaball í Grafarvogskirkju sunnudaginn 17. desember kl. 11:00. Við syngjum saman jólalög, hlustum á tónlistaratriði, dönsum í kringum jólatré og fáum jólasveina í heimsókn. Umsjón með stundinni hafa séra Guðrún Karls Helgudóttir og Þóra Björg Sigurðardóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson.

Óskasálmar jólanna verða í Kirkjuselinu kl. 13:00. Séra Sigurður Grétar Helgason þjónar. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson og forsöngvari er Björg Þórhallsdóttir.