Guðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl. 11:00. Séra Guðrún Karls Helgudóttir og séra Sigurður Grétar Helgason þjóna. Fermingarbörnum úr Foldaskóla og foreldrum þeirra er sérstaklega boðið. Vox Populi leiðir söng og organisti er Hilmar Örn Agnarsson.

Eftir guðsþjónustu verður stuttur kynningarfundur með fermingarbörnum og foreldrum og Pálínuboð þar sem allir leggja eitthvað til á borðið.

Sunnudagaskóli á neðri hæð kirkjunnar kl. 11:00. Brúðuleikhús, söngvar, sögur og límmiðar. Þóra Björg Sigurðardóttir og Hólmfríður Frostadóttir hafa umsjón. Undirleikari er Stefán Birkisson.

Selmessa í Kirkjuselinu í Spöng kl. 13:00. Séra Guðrún Karls Helgudóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng og organisti er Hákon Leifsson.

Verið öll hjartanlega velkomin!