Í vetur verða kyrrðarstundir í Grafarvogskirkju alla þriðjudaga kl. 12:00 og á eftir verður boðið upp á súpu eða léttan hádegisverð á afar vægu verði. Þetta eru kyrrlátar stundir í kapellu kirkjunnar með fyrirbænum, altarisgöngu og tónlist Þessar stundir eru tæplega hálftíma langar og eru opnar öllum. Hádegisverðurinn 500 kr. ef þú átt þær til.

Stundirnar hefjast í dag kl. 12:00 og þú ert velkomin/n!