Barnastarf Grafarvogskirkju hefst loksins á ný eftir sumarfríið. Dagskráin í vetur verður mjög spennandi og fjölbreytt, en hana má skoða hér á heimasíðunni undir ,,Barna- og unglingastarf“. Við bjóðum öll börn hjartanlega velkomin í starfið okkar og það kostar ekkert að vera með!
Starfið er sem hér segir:

6-9 ára starf á neðri hæð kirkjunnar alla mánudaga kl. 16:00-17:00
6-9 ára starf í Kirkjuselinu í Spöng alla fimmtudaga kl. 17:00-18:00

10-12 ára starf á neðri hæð kirkjunnar alla mánudaga kl. 17:30-18:30

Æskulýðsfélag (8-10.bekkur) alla mánudaga á neðri hæð kirkjunnar kl. 20:00-21:30 (hefst mánudaginn 11.september)

Sjáumst í kirkjunni!