Guðsþjónusta kl. 11:00 á Sjómannadaginn í Grafarvogskirkju. Helgistund við naustið/bátalægi fyrir neðan kirkjuna kl. 10:30. Félagar úr Björgunarsveitinni Ársæli sigla inn Grafarvoginn og taka þátt í helgistundinni. Árni Bjarnason formaður Skipstjórnarmanna á Íslandi flytur hugvekju, Örn Pálsson framkvæmdastjóri smábátaeiganda flytur ritningarorð. Þorvaldur Halldórsson söngvari syngur bæði við bátalægið og í messunni. Séra Vigfús Þór þjónar fyrir altari. Kaffi og kleinur eftir messu.