Föstudagskvöldið 12. maí kl. 20:00 verða ljúfir vortónleikar í Grafarvogskirkju. Nokkrir litlir hópar úr kórnum Vox Populi syngja fjölbreytt og skemmtileg lög og svo endar allur kórinn saman á ljúfum vorlögum sem gleðja hjartað. Miðar seldir við innganginn á aðeins 1.500 kr – posi á staðnum. Hlýleg stemning – takið daginn frá!