Nú eru fermingarnar að hefjast í Grafarvogskirkju. Næstkomandi sunnudag, 26. mars, verður fermt kl. 10:30 og 13:30 í Grafarvogskirkju. Klukkan 10:30 sjá séra Guðrún Karls Helgudóttir og séra Sigurður Grétar Helgason um ferminguna og kl. 13:30 sjá séra Arna Ýrr Sigurðardóttir og séra Grétar Halldór Gunnarsson um ferminguna. Kór Grafarvogskirkju syngur og organisti er Hákon Leifsson. Það verður sunnudagaskóli á neðri hæð kirkjunnar kl. 11:00. Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir og undirleikari er Stefán Birkisson.

Selmessa í Kirkjuselinu kl. 13:00. Séra Sigurður Grétar Helgason prédikar og þjónar fyrir altari. Vox Populi syngur og organisti er Hilmar Örn Agnarsson. Sunnudagaskóli í Kirkjuselinu kl. 13:00. Umsjón hefur Bjarki Geirdal Guðfinnsson og undirleikari er Stefán Birkisson.