Vegna ófærðar fellur helgihald niður í Grafarvogskirkju kl. 11:00, bæði messa og sunnudagaskóli. Lögreglan biður fólk að vera ekki á ferðinni svo hægt sé að ryðja götur en snjómagnið hér í Grafarvogi er gríðarlegt.

Einnig falla Selmessa og sunnudagaskóli í kirkjuselinu niður kl. 13:00.