Messa kl. 11:00 í Grafarvogskirkju. Séra Grétar Halldór Gunnarsson prédikar og þjónar fyrir altari. Barnakór Grafarvogskirkju syngur undir stjórn Sigríðar Soffíu Hafliðadóttur. Sunnudagaskóli á neðri hæð kirkjunnar kl. 11:00. Umsjón hefur Guðrún Karls Helgudóttir og Þóra Björg Sigurðardóttir. Undirleikari er Jóhanna Elísa.

Selmessa í Kirkjuselinu kl. 13:00. Séra Guðrún Karls Helgudóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Vox populi syngur og organisti er Hilmar Örn Agnarsson. Sunnudagaskóli í Kirkjuselinu kl. 13:00. Umsjón hefur Bjarki Geirdal Guðfinnsson og undirleikari er Jóhanna Elísa.