christmas-candles

Erfitt getur verið að horfa fram til jóla þegar ástvinur hefur fallið frá. Samveran sem haldin er nú í sautjánda sinn er sérstaklega hugsuð til að styðja fólk í þessum aðstæðum. Hamrahlíðakórinn syngur undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Séra Guðrún Karls Helgudóttir leiðir stundina, Jóhannes M. Gunnarsson læknir les ritningarlestur og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir flytur hugvekju. Í lok stundarinnar verður haldin minningarstund þar sem kirkjugestir geta tendrað ljós og minnst þannig látinna ástvina sinna. Boðið verður upp á léttar veitingar að stundinni lokinni. Samveran er túlkuð á táknmáli.

Landspítalinn, þjóðkirkjan og Ný dögun