brotid_hjartaBoðið verður upp á námskeiðið ,,Að ná áttum og sáttum” í Grafarvogskirkju nú í haust. Námskeiðið er sjálfstyrkingarnámskeið fyrir fráskilið fólk og hefst þann 13. október nk. með fyrirlestri kl. 20. Næstu 6 þriðjudagskvöld er síðan boðið upp á sjálfstyrkingarhópa undir handleiðslu prests. Námskeiðinu lýkur 24. nóvember og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Umsjón með námskeiðinu hefur sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir og nánari upplýsingar má fá í Grafarvogskirkju í síma 587-9070 eða hjá srarna@grafarvogskirkja.is

Sjá einnig:
http://tru.is/pistlar/2010/02/ad-na-attum-og-sattum/